Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

ICE GIRLS!!!

10. mars 2008 klukkan 09:09
Það er sko kominn tími á blogg stelpur mínar!! en ég er nú meiri furðufuglinn!!! sko.. ég ætlaði sko aldeilis að blogga og byrjaði á því að fá sms í símann minn útaf því að ég var búin að steingleyma lykilorðinu, en nei nei þá kemur að notendanafnið mitt sé "sandarar" ég hugsaði, bíddu nú við, sandarar, útaf hverju í anskotanum er ég með sandarar??! en ok, erla dofna fattaði ekki neitt og byrjaði á því að skrifa heiljarinnar blogg!!svakalega dugleg!!! allt í lagi með það, þegar ég er búin með hana þá fer ég í síðan mín til að tjekka hvernig færslan hafi tekist og þá kemur einhvað þvílíkt bull, stendur einhvað að þessi síða sé hætt við, þ.e. fyrirsögnin á síðustu færslu var "búið að hætta við bekkjarmótið"!! Fattarinn hjá mér ekki alveg að virka, fyrr en nokkru síðar eftir að ég var búin að pæla vel og lengi í þessu, en þá hafði ég verið að blogga á bekkjarbloggið mitt!!! Semsagt þá var bekkurinn minn á Hellissandi með síðu!!! hehehehe... ég var nú fljót að hringja í Helgu systir til að spurja hana hvernig í anskotanum ég gæti hent færslu út af blogginu!!! heheheheheheh....

En í annað...
Eins og flestir vita þá unnum við stelpurnar Bifróvision og við erum orðnar það frægar að við erum að fara í SÉÐOG HEYRT!!! Svalur   Erum við orðnar frægar eða........uuuuuuuuu JÁÁÁÁ !!!!!
En að lokum þá hvet ég alla til þess að mæta á Pub qvissið á þriðjudaginn næstkomandi því að það verða jú Mel B og Victoria sem að verða spyrlar kvöldsins!!! og ekki viljiði missa af því?????

En jæja var enda við að koma heim af æææææðislegri mynd, 27 dresses!! svvvooooooo mikil stelpumynd og vááá hvað hún var æðiii!! þetta er svona mynd sem að ég væri til í að horfa á aftur og aftur..

en góða nótt! kveðja MEL B Glottandi

Life @ Bifröst

07. febrúar 2008 klukkan 20:35
Henti inn hérna til hægri, upp (fyrir þá sem eru með fullkomnar tölvur) slide show- með myndum frá haustönn 2007, gersemar!!

Svo þarf að fara að hleypa smá lífi í þetta hérna, gengur ekki að haga sér eins og krakkhóra og axla enga ábyrgð, við sköpuðum þessa síðu, við þurfum að halda henni á lífi... það er nú alveg á hreinu...

Lappa eitthvað aðeins upp á þetta og eitthvað!! Koma svo stelpur!! Vð höfum svo margt að tjá okkur um.

Og það er jú þannig, að því meira sem er skrifað, því fleiri heimsóknir verða á síðuna....!!!

Missum nú ekki brækurnar alveg niðrum okkur!!!

Bifröst í beinni

18. nóvember 2007 klukkan 22:28
 Aahh.. Þegar augun í manni eru orðin hálf þurr og stjörf.. Borðið hjá manni fullt af nammibréfum, tómum Cult dósum og öðru rusli.. Að þá veit maður að nú er mín búin að læra NÓG!! ..og þarf eflaust að læra meira um jólin fyrir upptökuprófin... YEAH that’s life at Bifröst!..

Í tilefni afmćli míns...

05. nóvember 2007 klukkan 00:54
..þá kemur hér heil ritgerð um Sporðdrekann! og ef þið viljið kynnast mér betur að þá mæli ég með að lesa þetta því þetta höfðar mjög vel til mín hehe Koss


Sporðdrekinn
Árstími Sporðdrekans er mitt haustið. Á þessum tíma styttist dagurinn óðfluga og skammdegismyrkrið eykst. Gróðri hnignar, lauf eru fallin af trjám, frost sest í jörð og veður versnar. Fyrir Sporðdrekann er þessi tími mótandi og setur mark sitt á sálina. Hann er því heldur dulur og lifir töluvert í eigin heimi.
- jámm
Tilfinningar
Sporðdrekinn er tilfinningaríkur og frekar varkár. Að öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er kjarnyrtur og hreinskilinn og lítið fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur og tekur tilfinningar og líðan annarra inná sig. Hann heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Hann vill kafa djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar hann er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að ræða hvað sem er. Sporðdrekinn getur því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.
- já þetta er ég alveg 100%! á þetta við um fleiri Sporðdreka? anyone..?
Stjórnsemi
Sporðdrekinn er eitt af stöðugu merkjunum. Það táknar að hann er fastur fyrir og ósveigjanlegur í persónulegum stíl sínum og viðhorfum. "Nei, þetta geri ég aldrei," segir hann og verður ekki haggað. Þó hann geti virst rólegur á yfirborðinu er hann ráðríkur og stjórnsamur. Hann vill ráða, að minnsta kosti yfir eigin umhverfi og lífi.
- já það síðasta passar alveg, en er ég svona stjórnsöm?
Heilindi
Sporðdrekinn er skapstór og tilfinningaríkur og tekur ákveðna afstöðu með eða á móti mönnum og málefnum. Hann vill ganga heill að hverju verki, hvort sem er um vinnu, ást eða áhugamál að ræða. Hann er lítið fyrir hálfkák og vill komast til botns í hverju máli. Sporðdrekinn er því ekki maður sem á auðvelt með að skipta sér á milli margra ætlunarverka.
- jú jú passar svona nokkurn veginn
Einbeiting
Alvörugefni Sporðdrekans og þörf fyrir að komast til botns tengist öðrum persónuleikaþætti, sem er einbeiting. Hann hefur þann hæfileika að geta einbeitt sér að ákveðnum málum og útilokað umhverfi sitt og annað sem er óviðkomandi. Segja má að honum hætti til að fá einstök mál á heilann, svo jaðri við þráhyggju.
- ó já þegar áhuginn er 110%
Kaldhæðni
Skopskyn Sporðdrekans birtist oft í beittum og kaldhæðnislegum athugasemdum. Hann á til að "stinga" með eiturbroddinum fræga þegar sá gállinn er á honum. Hann er því erfiður andstæðingur og vont að lenda í rimmu við hann, enda á hann til að vera grimmur ef fólk reitir hann til reiði eða stendur í vegi fyrir honum. Hann berst hins vegar af sama krafti fyrir þá sem honum þykir vænt um og er að öllu jöfnu traustur og góður vinur.
- passið ykkur bara, nebblega alveg 117% rigtigt hihi
Dulúð
Sporðdrekinn hefur áhuga og hæfileika á sviði rannsókna. Hann heillast oft af því sem er dularfullt og hefur gaman af að svipta hulunni af yfirborðinu og komast að kjarna málsins. Hann hefur því oft áhuga á spennumyndum og glæpasögum, en einnig á dauðanum, kynlífi og reyndar öllu því sem er á einhvern hátt hulið myrkri, spennu og dulúð.
- já á sviði rannsókna.. ætli það hafi verið þess vegna sem ég dýrkaði CSI á tímabili? Sigga??
Einvera
Til að endurnýja lífsorku sína og viðhalda henni þarf Sporðdrekinn að draga sig annað slagið í hlé. Hann þarf á reglulegri einveru að halda. Ef önnur merki viðkomandi Sporðdreka eru félagslynd getur komið að sömu notum að skipta annað slagið um umhverfi. Hann þarf að hreinsa sig af utanaðkomandi áhrifum, til að geta sinnt eigin verkefnum án afskiptasemi og til að koma stillu á 'vatnið'. Einbeitingin er sterkust og ímyndunaraflið flæðir best þegar kyrrð ríkir í umhverfinu.

- so true..

En svo má ekki gleyma að við Sporðdrekarnir erum alveg yndislegir, skemmtilegir og frábærir líka Svalur


ps. Henti inn myndum Glottandi og fleiri myndir inná MySpace

Nýjar myndir!

28. október 2007 klukkan 21:25
Tróð inn nokkrum myndum síðan á fimmtudagskvöldið.  Hef ekkert nennt að skrifa við þær ennþá...


...þetta kemur allt saman með kalda vatninu bara.


later!

Bloggađu Bitch !

11. október 2007 klukkan 13:28
...voru skilaboðin sem ég fékk í morgun.
En hvað bloggar maður um þegar eina fólkið sem les þetta blog er með manni alla daga, öllum stundum ? Jaaa...mar bara spyr sig !
En hvað er annars með þessa myndasyrpu af okkur Magga ? Ég man ekki betur en að Erla hafi sett skýrar reglur um að engar myndir færu á netið nema búið væri að skoða þær.

Nýjar myndir eru á leiðinni

Myndir!

09. október 2007 klukkan 11:54
ég er sko að standa mig eins og hetja í myndunum! En þessar myndir eru sem sagt af hinum stóra flutningadegi. Hún Sigrún okkar flúði frá Sjónarhóli og kom yfir til okkar hehe svo miklu betra að hafa hana hér hjá okkur. Sjónarhóll er nefnilega svo langt í burtu sko.
Já dagurinn byrjaði bara með upplýsingatækninni og svo var farið yfir í flutninginn, sem átti að taka um klukkutíma. En hlutirnir fóru nú ekki alveg eins og við höfðum planað.. hehe. Við vorum búnar að reikna með stóru sterku flutningamönnunum strax eftir UPST.. en þeir voru svolítið seinir. Og hvað gera skvísurnar þá? Auðvitað gerum við þetta bara allt sjálfar og það gekk svona rosalega vel. En svo komu vinir okkar, Elli og Hrafnkell, og hjálpuðu okkur með það þyngsta. Bara kærar þakkir strákar!

Í gær var hún Sigrún með flottasta matarboð ever! Eldaða alveg dýrindis kjúklingarétt og alles - ohh það var svo kósí. Verst að myndavélin gleymdist.. en þetta lifir allt í minningunni hehe já ég ætla að enda þetta blogg með þessari væmni Koss

og er farin til Reykjavíkur - ohh mig hlakkar svo til Brosandi svo mamma, pabbi og Merci sys að koma til landsins - æði æði!

Gestabók eđa Gestapó?

07. október 2007 klukkan 23:57
Það gengur ekkert að fylla þessa gestabók hérna.... Challenge:


Sá sem skrifar fyrstur í gestabókina fær koss frá mér á einn af eftirtöldum stöðum:

1. kinnina
2. ennið
3.  handabakið
4. nöglina á þumalputta
5. augað!



Sjáum hvað gerist? Er þetta eitthvað til að auka gestabókarkvittið eða hvað?? Hvað haldið þið?

Tenglar??

04. október 2007 klukkan 15:59
Stelpur... spurning um að þið farið kannski að bæta inn tenglum hérna....

Frekar fátæklegt!!

ATHUGIĐ!!!!

03. október 2007 klukkan 00:18
Sigrún.. þú gleymdir símanum þínum í lesbásnum við hliðiná mér... hann er núna hjá mér hérna í Vallarkoti 3! ef þú hefðir farið beint heim að blogga eins og þér var skipað hefðiru frétt þetta fyrr!! hehe....

Life @ Bifröst

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Öflugasti Bloggarinn?